top of page

Vatnsberaöldin

 Upplýsingaöld 
Samkvæmt jógafræðum en einnig öðrum tímatalsfræðum er heimurinn að ganga í gegnum breytingar. Við köllum oftast þessar breytingar tækniþróun eða upplýsingaöld. Í jógafræðum eru tímarnir sem við lifum á oft kallaðir  Upplýsingaöld en einng  Vatnsberaöld. Það eru margir kostir við nýja tækni, internetið og aðgengi að upplýsingum sem hefði verið ómögulegt að nálgast fyrir 200 árum síðan. Tæknilegar breytingar hafa áhjákvæmilega áhrif á mannlegt samfélag, ákveðnir mannlegir þættir þurfa að breytast líka til að lifnaðarhættir, lífstíll og tækni fara saman.

Í upplýsingum um Vatnsberaöldina er talað um að við erum á leiðinni inn í nýja öld. Við erum að undirbúa okkur fyrir nýja leið til að lifa og vera. Við erum að stilla líkama, huga og anda til að lifa í öðruvísi heimi.
 
Í nútímasamfélagi eru margir að fást við spurningar um tilgang sinn og að fást við það að vera fastir í vana sem skynsemin segir að sé ekki ákjósanlegt. Vaninn hjá mörgum er oft á tíðum fölskylduarfur sem krefst athygli. Vaninn hjá sumum er orðinn svo niðurnjörvaður að hann kallast fíkn. Í kundalini jóga er mikið unnið með fíkn eða það er hægt að kalla það að skipta um stillingu.  Partur af því að skipta um stillingu er að breyta um sjónarhorn á sjálfsmyndinni, og samkvæmt jógafræðunum er nýja sýnin á sjálfsmyndinni  í gegnum hjartastöðina.

Á Vatnsberaöldinni erum við að færast frá:

1.    Skorti yfir í gnægð og auðlegð
2.    Úr takmörkuðu egoi í sálina og hjartamiðaða meðvitund
3.    Frá því að þrauka og lifa af, yfir í að slaka á og lifa með aðdráttaraflinu
4.    Frá því að þrauka og vera í niðurrifi, yfir í sköpun og vöxt
5.    Frá ótta yfir í traust og vissu
6.    Úr valdskiptingu yfir í jafna þátttöku og framlag
7.    Úr neikvæðu sjálfsáliti yfir í sjálfstraust og sjálfskærleika
8.    Úr tvíhyggju og dramatík yfir í frið og gleði
9.    Frá jarðneskum veruleika yfir í nýjar víddir
10.  Frá því að vera fórnarlamb, yfir í innri styrk og heilun

Til að við getum gert allt þetta þá þurfum við að flytja í hjartað. Við verðum að undirbúa líkamann fyrir þennan fluting. Það gerum við með því að styrkja líkamann, huga og tengja okkur við okkur sjálf innan frá. Þetta er einstaklingsmiðuð leið. En kraftur hópsins er grundvöllur til að við lyftumst upp og heilumst.  Þegar við komum saman í hóp, gerum jóga saman, hugleiðum og stillum líkamana okkar saman, þá munum við uppgötva innri krafta í öðru veldi og skipta um vitund sem við getum bara tengst þegar við erum í hóp.

Jóga
Árið 2013 var fólksfjöldinn í heiminum 7 billjónir, og á sama tíma eru örar breytingar í tækni, sálfræði og félagsfræði. 60 % íbúar jarðar eru farnir að stunda jóga.
Að stunda jóga er víða orðið daglegt brauð og vöxtur á þeirri iðkun er ör. Flestir hafa heyrt um það og í íslensku samfélagi er það nokkuð viðurkennt sem heilsurækt.
Jóga kemur frá orðinu yoke sem þýðir á ensku „to join together“ eða að sameinast. Kundalini jóga sameinar huga og líkama. Það gefur hverjum og einum verkfæri til þess að temja hugann og finna mátt agans. Það kennir okkur hvernig hægt er að vaxa, geisla, hvernig hægt er að þjóna og að vera.  Við tengjum  okkur sjálf saman, þá er átt við að andadráttur, líkami, sál og hugur fari í takt, en að tengja við  aðra getur líka verið jóga. Tilgangur með jóga er alltaf að sameina. Það fjallar ekkert um að verða liðug eða liðugur miklu frekar að allir þættir innra með okkur eru sameinaðir.
Þegar fyrstu bílarnir komu á sjónarsviðið í lok 19. aldar urðu  breytingar á lifnaðarháttum og lífstíl mannfólksins. Frá því t.d. að ferðast á hesti yfir í að nota bíl.  Í dag þykir okkur sjálfsagt mál að fólk þurfi að fara í ökunám, taka ökupróf og fá sér ökuréttindi. Mannfólkið hefur búið til kerfi og reglur sem snúa að ökutækjum og ökumönnum.
Við getum hugsað okkur að kundalini jóga sé ákveðið vísindalegt  reglukerfi sem getur verið hjálplegt fyrir almenna borgara á tækniþróunartímum.

Margir muna eftir því að það var bara til heimasími og oftast kunnu menn símanúmer utan að. Í dag er ekki svo algengt að fólk kunni mörg símanúmer vegna þess að tæknin sér um minnið. Tæknin í dag er að stórum hluta að vinna ákveðna huglæga vinnu, sem mennirnir unnu áður. Það hefur í för með sér að hugleg örvun hefur breyst mjög mikið með tækniþróun og venjulegur borgari fyllir huga sinn af allskyns upplýsingum sem eru jafnvel óþarfar og stundum skaðlegar án þess að veita því gaum.

Mannfólkið er með ákveðna lifnaðarhætti sem eru hluti af daglegu lífi og þykja ekkert sérstakt tiltökumál t.d. borða, elda, sofa, fara í bað, borga reikninga. Við vitum að ef við höldum reglu yfir grunnþætti okkar að þá eru meiri líkur á að okkur gangi betur með önnur lífsverkefni. Ef við værum mjög skítug myndum við, undir eðlilegum kringumstæðum, finna þörf til að þrífa okkur.
Það sama myndum við gera fyrir raftækin okkar, ef raftæki myndi senda okkur skilaboð um að einhver mappa væri ofhlaðin eða að einhvert forrit vildi fá hreinsun þá myndum við líklegast bregðast við og gera það sem þyrfti að gera. Einnig ef við eigum farsíma eða tölvu og tækið yrði batteríslaust þætti okkur eðlilegt að stinga því í samband.
En ef við myndum fá hugsun frá okkur sjálfum sem væri eitthvað á borð við ég held að það sé ofhlaðið í hugarbúinu eða ég held ég sé batteríslaus.  Þá er ekki allfaf víst að við myndum trúa því að þessi skilaboð væru rétt. Kanski myndum við bæla þessi skilaboð niður.

Mannveran er með undirvitund en hún á að virka eins og sía sem vinnur úr öllu áreiti. Stundum þegar undirvitundarhólfið er yfirfullt höldum stundum að það sé eitthvað að okkur og sumir leita sér að efnum til að minnka áhrifin af áriti undirvitundarinnar. Þegar okkur dreymir mikið þá er undirvitundin að sía mikið.
Ein leið til að hreinsa úr undirvitundinni er hugleiðsla. En þegar við upplifum það að vera batteríslaus eða jafnvel farin út í það ástand sem kallast að brenna út þá getur það verið þannig að undirvitundar-hólfið er orðið það fullt að það fer að hafa áhrif á starfsemi ákveðinna líffæra t.d. lifur eða nýru. Þegar lykil-líffæri eru farin að hægja á sér, þá líður okkur eins og raftæki sem er að klára batteríin.  

Með jóga og hugleiðslu getum við létt á hugarlegu og líkamlegu álagi.
 
Hver manneskja fæðist með gimstein innra með sér sem við getum kallað visku
 
Hamingjan er þinn fæðingarréttur
 
Lífið er stanslaust flæði af kærleika
 
Þín þátttaka er eina sem þarf

© 2023 by Natural Remedies. Proudly created with Wix.com

  • b-facebook
bottom of page