



Ráðgjöf
Talnaspeki
Viltu sýna heiminum styrkleika þína?
Viltu njóta þess sem er fullkomið innra með þér?
Námskeið í jógískri talnaspeki
Farið verður í grunninn að talnaspekinni sem er mikið notað í kundalini-jóga út frá orkustöðvunum og líkömunum 10.
Ein leið til að skoða sig í samhengi við alheiminn er í gegnum tölur. Talnaspekin gengur út á það að skilja okkur sjálf og aðra í kringum okkur. Við getum dýpkað tilgang okkar þegar við nýtum tölurnar sem vegvísi og við sjáum okkur sjálf og fólk í réttu ljósi.
Námskeiðið gengur út á að geta nýtt sér talnaspeki í daglegu lífi, ekki sem spádóm um framtíðina, heldur sem styrk til að hlusta á innri rödd. Við munum læra að lesa í afmælisdaga sem er eins og gluggi inn í lífsmynstur. Og skilja hvað karma þýðir en karmað getur verið lífskólinn þar sem við finnum okkar dýpsta fjársjóð.
Unglingar
Jóga er gott fyrir unglinga því það styrkir þá í að hlusta á sína eigin dómgreind og visku. Þetta er tímabil þar sem vinahópurinn skiptir miklu máli en innsta viskan þarf að vera besti vinurinn.
Hádegisjóga
Hefur þú prófað að gera hádegisjóga í rigningu og í miðjum tíma upplifað innri sól?
Umsagnir
„Ég fór á námskeið í talnaspeki hjá Estrid. Mér fannst áhugavert að skoða fjölskyldu mína í gegnum þessa speki og var mikið hlegið hjá fólkinu mínu þegar við skoðuðum persónueinkenni fólksins okkar. Þetta passaði ótrúlega vel. Mér finnst spennandi að nota talnaspekina til að sjá/skoða sjálfa mig í erli dagsins.“